Auglýsing

New york

09. desember 2009 klukkan 09:55
Jæja, tími á blogg, í dag var mikið verslað, Arna, Kristín, Lydía og Einar kiktu í búðir í dag, H&M, Sephora, MAC, Best buy og fleiri urðu fyrir valinu... við styrktum New York city um þónokkra dollara  planið er að halda ótrauð áfram á morgun.
Einar er orðinn sérfræðingur í málingarbúðum eins og hann segjir sjálfur frá. Við hittum Anderu vinkonu Kristínar í dag, fórum út af borða ásamt Þórunni, Íslending í New York,  og skemmtum okkur vel saman, við kíktum á times squrare sem okkur fannst rosa flott. Við erum túristar, að fýla það í botn, keyptum úrval af I love New York hlutum. Auglýstum Ísland... allir sem við hittum eru æstir í að koma til Íslands af því að við erum svo ótrúlega skemmtileg.

Bloggum betur á morgun, því núna er komin tími á svefn,

bestu kveðjur heim,
Arna og Kristín

New York, New york.

08. desember 2009 klukkan 04:03
Jaeja tha erum vid komin til NYC, vid truum ekki ad skidanamskeidid se buid, thetta var alltof fljott ad lida en audvitad greaddum vid helling eins og vid munum syna i brekkunum i vetur :) Dagurinn i dag byrjadi snemma, vid voknudum klukkan half sex, klarudum ad gera okkur til fyrir ferdalagid og logdum i hann. Vid keyrdum a fina kagganum okkar a flugvollinn i Denver, en ferdin tok tvo tima annad en a leidinni til Winter Park, Arna var mjog litid vor vid thetta ferdalag enda steinsvaf allan timan. Eftir innritun a flugvellinum, sem tok dagodan tima eins og a oft vid um okkur, thar sem vid erum med mjog mikinn farangur og bara almennt vesen, i frihofninni fekk ,,the Icelandic crew'' ser ad borda, kikti i budir og svo var farid upp i vel. Thremur timum sidar voru vid lentar a JFK, thar sem leidir okkar skildust, Elsa og Gudny foru beint heim til Islands en vid tokum taxa upp a hotel. Skradum okkur inn a hotel, logudum okkur sma til og forum ut ad borda a finan italskan stad herna rett hja, eftir matinn forum vid i gongutur um Manhattan, saum jolatred a rockafeller center og kiktum i nokkrar budir tho lang flestar hafi verid lokadar. Uti var fullt af folki, og vid greinilega ekki einu turistarnir i baenum, annars lyst okkur rosa vel a borgina, allt svo stort og flott og oll jolaljosin VA! A morgun er planid ad vakna snemma og kikja i budir, svo aetlum vid ad hitta Andreu vinkonu hennar Kristinar og hafa thad bara rosa gaman herna. Takk fyrir athugasemdirnar og allar kvedjurnar og verid dugleg ad commenta :) Bestu kvedjur ur New York, Arna og Kristin.

The Icelandic Crew

07. desember 2009 klukkan 05:04
já sæll, hér segir af THE ICELANDIC CREW og afrekum Örnu og Kristínar.

Síðasti skíðadagurinn alveg að verða búinn og ætlum við MÓNÓFJÖLSKYLDAN; Elsa - Guðný - Erna ólimpíufari - Einar - Kristín og Lydía Ósk að klára hann með stæl með cherry kók og pitsu!

Skíðadrottningarnar eru sko aldeilis búnar að standa sig vel. Framfarirnar eru frábæra; Kristín og Arna skíða báðar einar og Einar og bæta stílinn í hverri ferð, alveg hreint ótrúlegt hvað gellurnar hafa tekið miklum framförum (enda líka með gjegguðum ferðafélögum :o)  það er ekki kominn tími á sýnikennslu hjá þeim en það verður auglýst síðar ...

Það snjórar nú loksins í WinterPark, heimamenn mikið glaðir því aðeins eru örfáar lyftur opnar.  Það var kaldur vindur sem tók á móti okkur í fjallinu í dag, en íslenska krúið lét það ekki aftra sér frá því að læra sem mest. Einar brilleraði á mónóskíðinu í dag - Erna ólimpíufari þarf nú að fara að vara sig, hún er komin með keppinaut eða kvígu! Einar er og verður sko eftirminnilegasti nemandinn hér í WinterPark forever, samnemendur hans eiga eftir að sakna hans MIKIÐ, sérstaklega Dennis - æji já við erum e.h svo Bæ ;o)
Elsa átti Kristínardag í dag, þ.e sá dagur sem nemandinn dettur oft! hún er nú  e.h lúin eftir daginn. Guðný hélt sig á töfrateppinu, og náði að töfra einn lyftustarfsmanninn með sér út í skafl (því miður náðist ekki mynd af því). Lydía ósk fylgdi Örnu og Kristínu í þeirra kennslu og hafði ekkert í þær en djö hvað það var kalt - nístingskuldi 12° frost og vindkælingin gerðu örugglega 30° frost, næstum eins og í Bláfjöllum - Einar fékk tár í augun af heimþrá.

Shoei einkakennarinn var ánægður með gjellurnar og þær launuðu honum vel - hann á heiður skilið að hafa getað kennt þeim e.h ... hahahahahah ....

well guys - time to go get ready for NY City, see ya´later alligater ...

með kveðjur frá THE ICELANDIC CREW ...  Lydía ósk

Til Lárusar Isfeld við förum frá Winter Park á morgun en hérna býr íslensk stelpa sem heitir Erna og skíðar á mono skíði, hún er að æfa sig fyrir ólympíuleikana í Vancuver. Þú getur fundið hana í gegn um NSCD skrifstofuna sem er á skíðasvæðinu.

Skíðadagur númer fjögur

06. desember 2009 klukkan 04:26
Í dag var ræs klukkan hálf átta eins og venjulega hérna í Fraser crossing í herbergi 3113. Við rúlluðum yfir á svæði gerðum okkur reddý og fórum út með Shoei og öðrum gæja sem við getum ómögulega vitað hvað heitir. Við vorum í brekkunum sem við erum búnar að vera í undanfarna daga sem heitir endaviour, við erum aðallega að æfa hraðastjórnun, jafnvægi og að stoppa.
Síðan fórum við eina ferð í lyftuna við hliðina sem endað ekki betur en svo að Kristínu og þjálfaranum hennar tókst ekki nógu vel að fara í lyftuna fóru út af ofan í drullusvað í fínu nýju hvítu úlpunni sinni, var kölluð mud lady restina af deginum.
Eftir hádegi var Einar að æfa með okkur, hann fékk hint frá þjálfurunum um hvað þeim finnst við eiga að æfa okkur mest núna og í náinni framtíð, svo komu tveir strákar úr mono skíða teaminu og voru með okkur í lok æfingarinnar, við lærðum mikið af þeim enda þeir með þeim bestu í bandaríkjunum í monoskíðun.
Eftir skíði kíktum við í búðir og drykk á uppáhalds veitingarstaðinn okkar hérna í bænum ásamt  hinum íslendingunum hérna. Við fengum tónlistaratriði beint í æð, það mætti til okkar tvær konur og tveir karlar í svona gömlum bandarískum búningum, svona ekta jóla, þau tóku fyrir okkur tvö lög og mamman í hópnum hún Lydía Ósk réði sér ekki út hlátri, myndir og vidjó af því seinna.

En látum þetta duga í bili, Biðjum að heilsa heim.

Besti kveðjur, Arna og Kristín


ÆÆ, stelpurnar gleymdu að logga sig út þannig að ég get fengið að tjá mig aðeins.
Nú í fyrsta lagi þurfa þær að fara í ræktina og æfa DIBBSIN og aðra vöðva sem þær þykast ekki hafa virka.
Við erum búin að hitta krakka með sama skaða í skrokknum og þau gera hluti sem við héldum að ekki væri hægt að gera.
Þannig að vestfirska deildin þarf að taka á stóra sínum, nýjar æfingar, pabbinn að bæta stílinn að Örnu sögn!
Sjúkraþjálfarnir fá nýjar æfingar með Örnu og Kristínu sem við lærðum hjá John.
Arna er búin að ákveða að vera með mótorhjólahjálminn og íshokkýbrynju á sér á fyrstu æfingunum:)
Bannað að hafa oddhvassa hluti nálægt á fyrstu æfingunum hjá báðum skíðaköppunum.
Nú þar sem ég ég sagður vera trúðurinn í túrnum (sem mér finnst ósanngjarnt) ÞÁ mun ég fylgjast náið með bolta og teygju æfingunum sem þeim var kennt. Ég held að það þurfi að kaupa einkaþotu handa mér þannig að ég geti fylgst með á báðum stöðum.
Stelpurnar eru að taka báðar hendurnar af mér, þannig að ég fæ ekki að halda áfram, finnst það mjög ósanngjarnt.

Trúðurinn Einar

... og þar sem Einsinn loggaði sig EKKI út þá ætla ég bara rétt aðeins að bæta örlitlu við um karlinn sem býr með okkur. hann er nú alveg ágætur, bræddi undir skíðin mín í gær þannig að ég tók alla á skíðastólanámskeiðinu í nefið, svo sá hann um kvöldmatinn, setti popp í örbylgjuna! rosa vel poppað hjá kalli...

já, hér er mikið fjör og mikið gaman, enda trúður tekinn með til að lífga upp á þreyttar skíðastelpur ...

kveðja frá þessari fullorðnu - mömmunni - kokknum - skriftunni - og þeirri með hor í nös :o)   - Ló



 

Dagar tvö og þrjú á skíðum.

05. desember 2009 klukkan 05:08
Núna erum við búnar með þrjá daga á skíðanámskeiðinu, þetta hefur gengið svona upp og niður, við erum báðar með harðsperrur og marbletti og frekar vel þreyttar. Svo er slappleikinn búinn að kíkja við, höfuðverkur og magaverkur og fleira. Það er búin að vera mikið að gera verið að nota þennan stutta tíma sem best.

Við erum á námskeiði frá 9-12 og 1-4 erum báðar búnar að taka pásur einhvern dagspart, vegna slappleika og þreytu.
Það er skíðalið hérna að æfa fyrir olympíuleika fatlaðra í Vancover, Canada í vetur. Við erum búin að vera að fylgjast með þessum krökkum og okkur finnst þau rosa góð :)
Okkur gekk vel í gær, Kristín fór ein án aðstoðar nokkrar ferðir, Arna tók nokkrar byltur í brattanum þar sem okkur gengur ekki nógu vel eins og er.
Í gærkvöldi fórum við síðan í kvöldmat til Beth með íslendingunum hérna í Winter Park, það var mjög gaman enda skemmtilegur hópur. John, maðurinn hennar Beth er það sem heitir streight coach eða styrktarþjálfari, hann fór með okkur yfir nokkrar æfingar sem eiga að styrkja okkur sérstaklega fyrir skíðin og bara allt lífið, hann setti okkur báðar á stóran æfingarbolta til að æfa jafnvægið sem var áskorun fyrir okkur.

Í dag tókum við frekar rólegan dag, tókum báðar pásu frá skíðunum um stund út af veikindum og byltum.
Eftir skíði kíktum við síðan í búðirnar hérna á móti, hérna eru nokkrar skíðabúðir, kaffihús, barir og veitingastaðir sem eru hérna við lyfturnar. En ef við keyrum í 5 mínútur komum við inn í bæ sem heitir Fraser, þar sem meira er af verslunum og þjónustu, núna eru Elsa og Guðný í heimsókn að ræða málin um framhaldið eftir þetta skíðanámskeið og fleira.

Kveðjum í bili, þökkum fyrir kveðjurnar,

Arna og Krísin

p.s. það eru komnar myndir í albúmin Winter Park og Winter Park 2
      vídjó eru í vinnslu...

Fyrsti dagurinn á skíðum búinn...

03. desember 2009 klukkan 04:36
Dagurinn byrjaði snemma, klukkan sjö vöknuðum við drifum okkur í fötin, fengum egg og beikon sem Lydía Ósk eldaði fyrir okkur. Klukkan hálf níu fórum við yfir á skíðasvæðið sem tekur bara 2 mínútur, það er nefninlega bara hérna rétt hinum megin við götuna. Við hittum kennarann okkar hann Jeremiah sem var einn með okkur fyrir hádegi. Við byrjuðum mjög rólega á jafnvægisæfingum og fórum svo í pínu litla byrjendabrekku þar sem lyftan er ,,magic carped'' sem er bara færiband, slétt við snjóinn þar sem maður stendur eða situr á.
Síðan fórum við nokkrar ferðir í stólalyftuna og okkur gekk mjög vel... fyrir utan nokkrar byltur....

Eftir hádegi hélt Arna ennþá með Jeremiah og Kristín fékk nýjan kennara sem heitir Shoeai, okkur gekk bara svona rosa vel og kennaranir voru mjög ánægðir með okkur. Við hættum svo klukkan þrjú. frekar mikið þreyttar.

Kennararnir okkar eru frábærir, hafa mikla þekkingu og eru hressir og skemmtilegir. Allt fólkið á svæðinu er fáránlega kammó, það er eins og maður hafi þekkt þetta lið alla ævi.

Eftir skíðin fórum við heim í sturtu og síðan út að borða með Elsu og Guðný sem eru hérna á námskeiði að læra að kenna á mono-skiði ; Beth sem þær gista hjá framkvæmdastjóri NSCD og Ernu sem er 22 ára stelpa frá Egilistöðum og hefur verið hérna úti að æfa mono skiði undanfarna vetur, hún er einmitt á leiðinni á vetrarólympíleikana í Vancover í mars.

Við kveðjum í bili enda frekar mikið þreyttar eftir erfiðan dag...

Bestu kveðjur, Arna og Kristín :)

Komnar til Winter Park! =)

02. desember 2009 klukkan 04:25
Jæja þá erum við komar á leiðarenda, lögðum sem sagt á stað frá Kefllavík í gær Mánudaginn 30. nóv og gistum í nótt á Double tree hótelinu á JFK. Í morgun klukkan átta fórum við svo í flug til Denver, leigðum þar þennan fína bíl og erum núna komnar til Winter Park þar sem við munum vera næstu vikuna.

Ferðin var alls ekki átakalaus, allt gekk frekar vel á Keflavík, fyrir utan smá töf á vélinni, á JFK flugvellinum í New York fengum við ekki stólana okkar upp að flugvélinni heldur vorum keyrðar um á gömlu úr sér gengnum flugvallarstólum af tveimur starfsmönnum. Við fengum þó að fara á undan í vegabréfsáritun til Bandaríkjanna, sem hefði annars tekið að minnsta kosti klukkutíma. Þá var það að sækja töskurnar og komast upp á hótel en auðvitað erum við með fáránlega mikinn farangur, þannig að við fjögur urðum að taka tvo stóra gula New York taxa uppá hótel. Arna og Lydía Ósk tóku þann fyrri og voru komar uppá hótel eftir um það bil 10 mínútur, en Kristín og Einar voru ekki svo heppin, í fyrsta lagi tók langan tíma að bíða eftir stórum taxa, og svo fór bílstjórinn með þau í ógöngur en auðvitað komust þau heilu og höldnu á hótelið, þar fengum við okkur kvöldmat og fórum svo að sofa.
Síðan var ræs klukkan 5, en við misstum samt af hótel skutlunni klukkan hálf sex an tókum eina klukkan sex.
Þá var fórum við í langa innritunarröð, en fengum svo að fara fram fyrir af því við erum svo mega sætar ;)
Eftir smá vesen við innritunarborðið og svolítið góða yfirvigt lág leiðin í vopnaleit þar sem naut af konu leitaði á okkur eins og við værum eftirlýstar í mörgum löndum. Svo fórum við beint inní vél og flugum í næstum 5 tíma þegar við lentum í Denver tókum við rútu á bílaleiguna þar sem góður hálftími fór í það að ná í bílinn, við komumst að þeirri niðurstöðu að best væri að taka stóran jeppa og GPS...

Þá voru allir orðinir svangir og stefnan sett á Ruby tuesday sem kom inn á GPS-inn, við keyrðum sem leið lág inn í miðja auðn og fundum engan matsölustað, og eiginlega engin hús eða bíla heldur, eftir góðan rúnt ákváðum við að hætta þessarri vitleysu og settum Winter Park inn á staðsetningartækið og ákváðum að finna matsölustað í leiðinni, eftir frekar langa leið fórum við á taco bell og héldum svo á upp í fjöllin. Á leiðinni var þetta ótrúlega útsýni snarbrött fjöll til beggja handa en enginn snjór, svo færðumst við nær.. eða svo héldum við fórum í gegnum kúrekabæ sem fullur var af spilavítum... fórum svo aðeins lengra og allt í einu mætti okkur malarvegur... en við hlýddum bara vinkonu okkar í staðsetningartækinu en fannst þetta pínu skrýtið þegar við vorum komin til Ghost Town á einbreiðum malarvegi, en við héldum áfram að fara eftir vinkonunni. En þegar við vorum farin að keyra í hringi vorum við ekki allveg jafn sátt með kellu, við tóku endalausar krókaleiðir sem leiddu okkur alltaf sama hringinn. Að lokum var stefnan sett á kúrekabæinn þar sem við spurðum til vegar og loksins komumst við aftur á réttan spöl. Þarna voru allir orðnir frekar pirraðir og Arna frekar slöpp.
Tvem mínútum áður en við komum í bæinn stoppaði okkur lögga fyrir of hraðan akstur, Einar fékk sekt, ekki þá fyrstu á ævinni....

Þá mættum við á hótelið, fengum lykil af íbúðinni okkar en nei... engin sturtuaðstaða fyrir fólk í hjólastól... frábært! Við töluðum við hótelafgreiðslumennina sem redduðu okkur nýrri íbúð með sturtu... en nei þá var ekkert aðgengi á klósettið! Þá var að ráða, sturta eða klósett... við tókum fyrstu íbúðina og fengum lítinn bekk til að setja ofan í baðkarið... við eigum eftir að sjá til hvernig það fer með sturtunar... þetta er ekki allveg eins og við myndum kjósa það en það kemur í ljós.

Svo kíktum við í stóran og flottan súpermarkað, versluðum mat og smá fleira, fórum heim fengum okkur að borða og svo er stefnan sett á svefn núna klukkan 10.

Mæting klukkan níu í fyrramálið þannig að það verður vaknað snemma...

Reiknum með að blogg aftur á morgun,
Bestu kveðjur,

Arna og Kristín